Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands

Þórunn S | 9. nóvember 2011 22:10

Söngkeppni NFSu 2011!!

Dömur mínar og herrar, nú er stundin runnin upp! Hin árlega söngkeppni NFSu verður haldin í 21. skipti í íþróttahúsinu Iðu, fimmtudaginn 10. nóvember. 15 atriði og 22 keppendur munu berjast við sigurinn. Sigurvegarinn mun svo keppa fyrir hönd skólans í landskeppni fjölbrautaskólanna sem haldin er árlega á Akureyri. Húsið opnar klukkan 7 og hefst keppnin klukkan 8. Það er um að gera að mæta sem fyrst til að tryggja sér gott sæti, enda er búist við fjölda fólks.

Ástin mun vera allsráðandi, því að slagorð keppninnar er tour pour l'amour, eða allt fyrir ástina, á góðri íslensku.

Sjoppan verður á sínum stað svo enginn ætti að verða hungurmorða! Gos og sælgæti stendur til boða í henni á ásættanlegur verði.

Miðaverð er 1500 krónur fyrir félaga nemendafélags, en 2000 krónur fyrir ófélaga/almenning.

Láttu þennan stórviðburð láta framhjá þér fara! :D

Sjáumst hress og kát á fimmtudaginn!