Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands

Þórunn S | 26. október 2011 15:31

Halloweenball og halloween kvöldvaka!

Sælir, það fór nú ekki framhjá neinum að hið árlega halloweenball var haldið á fimmtudeginum síðastliðnum í Hvíta húsinu. Var það núna haldið á fimmtudegi og haustfrí daginn eftir, svo allt fór vel fyrir því.  Margt var um manninn á ballinu og var geðveikt fjööööör. Veðurguðirnir tróðu upp við mikinn fögnuð. DJ.amma sá einnig um að skemmta lýðnum. Á efri hæðinni voru upprennandi skífuþeytarar sem sáu um skemmtilega músík.

Svo kom hið langþráða haustfrí. Sem stóð frá föstudegi til mánudags.

Á þriðjudeginu snéru allir aftur í skólann, drulluþreyttir og einbeittu sér að náminu.

Nú í kvöld (miðvikudegi) mun hin æðislega halloween kvöldvaka fara fram. Byrjar hún klukkan 8 á staðartíma. Kostar örfár 500 kr fyrir félaga og 1000 kr fyrir ófélaga. Jón Víðis töframaður koma og skemmta fólkinu, vakningamyndbandið, hrollvekjumynd, verðlaun fyrir besta búning á halloweenballinum og hljómsvetinin Aragrúi mun koma og spila.

Sjáumst æðislega hress og kát í kvöld :)