1. Almenn ákvæði
1. gr. Nafn félagsins er Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands, skammstafað N.F.Su. Heimili þess og varnarþing er á Selfossi. Myndmerki þess og kennitákn lítur svona út:
2. gr. Markmið félagsins eru:
a) að sjá um félagslíf nemenda,
b) að gæta hagsmuna nemenda,
c) að veita félögum ýmis fríðindi.
3. gr. Félagsmenn teljast allir þeir nemendur skólans sem greiða félagsgjöld hverrar annar.
a) Félagsmenn skulu mæta í myndatöku í upphafi hverrar annar og fá þá afhent skírteini með nafni, kennitölu og mynd af viðkomandi. Félagsmenn eru sjálfir ábyrgir fyrir því að mæta í myndatöku og skulu gera það fyrir dagsetningu ákveðna af nemendaráði. Félagsmenn bera sjálfir ábyrgð á að sækja skírteini sín.
b) Skírteinin veita handhöfum þeirra ýmis fríðindi en hafi félagsmaður ekki skírteini undir höndum nýtur hann engra réttinda innan félagsins.
2. Stjórn félagsins
1. gr. Stjórn N.F.Su., skipa formaður, gjaldkeri og ritari. Stjórn N.F.Su. annast daglegan rekstur félagsins og kemur fram fyrir hönd þess.
2. gr. Nemendaráð starfar með stjórn N.F.Su. Nemendaráð hefur umsjón með allri starfsemi félagsins. Það getur kosið í nefndir og ráð sér til aðstoðar sem starfa að sérstökum málefnum innan þess. Nemendaráð hefur samstarf við nefndir, ráð og klúbba, sem starfa á vegum N.F.Su. Nemendaráð er skipað stjórn N.F.Su., formanni skemmtinefndar, formanni íþróttaráðs, formanni ritráðs, markaðsstjóra, formanni leikfélags, ritstjóra pressuvefs (vefstjóri), formanni tækjanefndar og fulltrúa nýnema. Fulltrúar Jafningjafræðslunnar og skólanefndarfulltrúi hafa áheyrnarrétt á fundum nemendaráðs. Stjórn N.F.Su. getur beitt neitunarvaldi gegn samþykktum nemendaráðs. Nemendaráði er heimilt að sækja allar samkomur á vegum félagsins endurgjaldslaust.
3. gr. Formaður N.F.Su. hefur umsjón með störfum nemendaráðs, hann boðar fundi þess og kemur fram fyrir hönd þess. Hann hefur rétt til að sitja fundi allra nefnda, ráða og áhugafélaga N.F.Su. Formaður N.F.Su. er meðlimur í skólaráði og situr skólanefndarfundi fyrir hönd nemenda.
4. gr. Gjaldkeri N.F.Su. hefur umsjón með fjármálum félagsins og ber að láta gjöld og tekjur fara um ávísanareikning þess. Hann hefur aðgang að bókhaldi allra nefnda og ráða N.F.Su. Hann leggur fram heildarreikninga félagsins á aðalfundi félagsins. Gjaldkeri N.F.Su. situr einnig í skólaráði ásamt formanni N.F.Su. fyrir hönd nemenda.
5. gr. Ritari N.F.Su. ritar fundargerðir nemandaráðsfunda og les bréf sem að berast félaginu. Hann heldur yfirlit yfir starfsemi og félagslíf N.F.Su., þ.m.t. samantekt á Ársskýrslu fyrir Aðalfund. Hann sér um að skrifa bréf félagsins. Ritari N.F.Su. er staðgengill formanns í forföllum hans. Ritari N.F.Su. situr ásamt formanni og gjaldkera í skólaráði fyrir hönd nemenda. Hann hefur umsjón með að útvega nemendur í gæslu fyrir böll, er tengiliður við það rútu-fyrirtæki sem ekur í sætaferðum og sér um ýmis önnur störf er til falla. Einnig hefur Ritari yfirumsjón með söngkeppninni.
3. Nefndir og ráð
1. gr. Innan N.F.Su. starfa eftirtaldar nefndir og ráð:
a) Skemmtinefnd. Hún er skipuð fimm nemendum . Þar af einum formanni sem ber ábyrðá störfum hennar og er meðlimur í nemendaráði. Nefndin skal sjá um öflugt og fjölbreytt skemmtanalíf fyrir nemendur.
b) Ritráð. Það er skipað sjö nemendum, þar af einum ritstjóra sem ber ábyrgð á störfum þess og er meðlimur í nemendaráði. Ritráð skal sjá um útgáfu skólablaðs N.F.Su., NOTABENE, og skal það koma út a.m.k. einu sinni á önn. Ritráð skal kappkosta að hafa blaðið fjölbreytt og vandað. *
c) Íþróttaráð. Það er skipað fimm nemendum, þar af einum formanni sem ber ábyrgð ástörfum þess og er meðlimur í nemendaráði. Íþróttaráð skal stuðla að öflugri og fjöl-breyttri íþróttastarfsemi innan skólans og sjá um framkvæmdir keppna við aðra skóla.
d) Vefráð. Það er skipað þrem nemendum, þar af einum ritstjóra sem ber ábyrgð á störfum þess. Hann er meðlimur í nemendaráði. Vefráð skal sjá um heimasíðu N.F.Su., Pressuvefinn, birta þar fréttir og uppfæra hann reglulega. Þar koma fram fréttir innan skólans, tilkynningar frá nefndum og annað sem á erindi til nemenda. Hann skal uppfærast a.m.k. mánaðarlega. Ritstjóri pressuvefs (vefstjóri) heldur saman umfjöllun um N.F.Su. í öðrum fjölmiðlum.
e) Tækja-,ljósmynda- og videónefnd. Hana skulu skipa 3 nemendur, þar af einn formaður sem ber ábyrgð á störfum hennar. Hann getur setið fundi nemendaráðs ef hann óskar þess. Þar hefur hann ekki atkvæðisrétt, aðeins tillögurétt. Tækja-, ljósmynda og videonefnd ber að sjá um að taka upp viðburði, svo sem söngkeppni, leikrit, kvöldvökur og busavígslur. Einnig ber henni í samráði við vefráð NFSU.IS og NOTA BENE að taka ljósmyndir af böllum og öðrum viðburðum.
f) Leikfélag N.F.Su. Það skipa þeir sem hafa áhuga á leiklist og vilja vinna að uppfærslu á skólaleikriti á vegum félagsins. Formaður leikfélagsins skal kosinn um leið og kosið er í önnur embætti á vegum N.F.Su. og situr hann í nemendaráði. Einnig skal kosið um 2 einstaklinga í stjórn Leikfélags um leið og kosið er í önnur embætti á vegum N.F.Su. *
g) Markaðsráð. Hana skipa fjórir einstaklingar. Markaðsráð sér um að afla auglýsingum (fyrir blöð, bæklinga, skjávarpa o.s.frv.) og styrkjum fyrir félagið. Einnig sér markaðsráð um að auglýsa viðburði á vegum félagsins, bæði innan skólans sem utan. Formaður markaðsráðs hefur umsjón með starfi ráðsins og heldur utan um að keyptar auglýsingar verði örugglega birtar.
h) Kátudaganefnd. Hana skipa níu manns. Skemmtinefnd er sjálfkjörin í Kátudaganefnd en auk þess skulu sitja 2 fulltrúar kennara, 1 úr nemendaráði og 1 fulltrúi nemenda. Formaður skemmtinefndar skal skipaður formaður nefndarinnar. Nefndin skal sjá um undirbúning og framkvæmd Kátra daga.
i) Flóafársnefnd. Hana skipar íþróttaráð auk þriggja fulltrúa kennara. Nefndin skal sjá um framkvæmd og undirbúning Flóafárs.
j) Söngkeppnisnefnd. Ritari nemendráðs er formaður hennar og skipar hann 5 nemendur í nefndina auk eins úr nemendaráði. Söngkeppnisnefnd sér um undirbúning og framkvæmd á söngkeppni NFSu sem haldin er á haustönn ár hvert.
j) Skreytinganefnd. Sér um að skreyta skólann og tilfallandi fyrir ýmsa viðburði nemendafélags, s.s. busavígslu, þemaböll, söngkeppni og kátadaga. Nefndina skipar markaðsstjóri og starfar hún undir honum.
k) Lagabreytinganefnd. Tekur hún til starfa mánuði fyrir aðalfund. Hana skipa tveir úr stjórn N.F.Su. og einn oddamaður úr nemendaráði. Tekur hún til skoðunar allar lagabreytingartillögur. Hún skal skipuð á nemendaráðsfundi.
2. gr. Nefndir og ráð N.F.Su., nema Kátudaganefnd* og Flóafársnefnd, skulu gera áætlanir um starf sitt í upphafi hverrar annar.
3. gr. Ábyrgðarmenn nefnda og ráða bera ábyrgð á fjármálum gagnvart gjaldkera N.F.Su.
4.gr. Forsvarsmenn hverra nefnda hafa rétt til að víkja einstaklingum tímabundið úr nefndum. Ef víkja á einhverjum alfarið úr nefnd skal það borið undir nemendaráð á fundi og skal sá einstaklingur fá að tala sínu máli.
5.gr. Meðlimir nemendaráðs og allir nefndarmenn skulu borga félagsgjöld.
6. gr. Nemendur sem sitja ráð og nefndir N.F.Su. fá einn frímiða á ball á hvorri önnskóla ársins.
4. Áhugafélög
1. gr. Meðlimir N.F.Su. geta stofnað áhugamannafélög innan N.F.Su.
2. gr. Við stofnun áhugamannafélaga innan N.F.Su. skal kjósa stjórn félagsins sem skipa skulu formaður, gjaldkeri og ritari, einnig skal velja félaginu nafn. Þegar þessum upplýsingum hefur verið skilað til nemendaráðs telst það formlega stofnað.
3. gr. Áhugamannafélög skulu starfa sem mest sjálfstætt.
4. gr. Áhugamannafélög geta sótt um fjárstuðning fyrir starfsemi sína til nemendaráðshafi þau tilkynnt stofnun þess. Þau skulu kappkosta að láta starfsemi standa undir sér fjárhagslega s.s. með árgjöldum félagsmanna eða öðrum fjáröflunum. Ekki geta áhugafélög sótt um hærri styrki en sem nemur 15. þúsund kr. Á önn og hefur gjaldkeri rétt til að krefja nefnd um endurgreiðslu ef honum finnst notkun styrksins ekki við hæfi að tengja við starf N.F.Su.
5. gr. Gjaldkeri N.F.Su. hefur aðgang að bókhaldi félaganna ef þau njóta fjárstuðnings Nemendafélagsins.
6. gr. Formaður áhugamannafélags er tengiliður við nemendaráð og skal hann tilkynna nemendaráði starfsemi félagsins eftir nánara samkomulagi þar á milli.
5. Aðalfundur
1. gr. Aðalfundur skal haldinn undir lok vorannar
2. gr. Hann skal auglýstur með viku fyrirvara og er löglegur sé löglega til hans boðað.
3. gr. Dagskrá aðaðalfundar:
a) Fundarsetning. Formaður NFSu skal skipaður fundarstjóri og ritari NFSu skal skipaður fundarritari.
b) Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
c) Ársskýrsla nemendaráðs lögð fram.
d) Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
e) Lagabreytingar.
f) Önnur mál.
g) Orðið gefið laust .
h) Fundi slitið.
4. gr. Ef færri en 40% nemenda sitja fundinn þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða til samþykktar.
6. Nemendafundur
1. gr. Nemendafundur er opinn fundur nemenda F.Su. og skal haldinn:
a) ef nemendaráð telur þörf á að leggja eitthvað mál fyrir nemendur,
b) ef minnst 10% nemenda krefjast þess,
2. gr. Ef færri en 40% nemenda sitja fundinn þarf minnst 2/3 hluta greiddra atkvæði til samþykktar.
3. gr. Nemendafundur skal auglýstur með minnst dags fyrirvara.
7. Kosningalög N.F.Su.
1. gr. Kosningar til allra embætta N.F.Su. skulu fara fram að vori. Kosningar skulu ekki haldnar fyrr en 14 dögum fyrir aðalfund og ekki síðar en degi fyrir aðalfund.
2. gr. Kosningar skulu vera leynilegar. Aðeins félagsmenn N.F.Su. hafa kosningarétt.
3. gr. Þriggja manna kjörstjórn, skipuð af nemendaráði, skal sjá um framkvæmd kosninganna. Hún skal skipuð tveimur úr nemendaráði en þriðji aðilinn skal ekki sitja í nemendaráði eða vera í ráðum eða nefndum innan þess. Verkefni kjörstjórnar eru:
a) Að auglýsa eftir framboðum í embætti N.F.Su.
b) Að sjá um framboðsfund þar sem frambjóðendum gefst kostur á að kynna sig og áform sín.
c) Framkvæmd kjörfundar.
d) Talningu atkvæða.
4. gr. Kjörstjórn er skipuð mánuði fyrir kosningar.
5. gr. Hyggi kjörstjórnarmeðlimur á framboð til embættis innan N.F.Su. ber honum að segja af sér og nemendaráði að tilnefna annan í hans stað.
6. gr. Þeir sem taka sér sæti í kjörstjórn, til að halda hlutleysi, fyrirgera sér kosningarétti og mega ekki undir neinum kringumstæðum lýsa yfir stuðningi við frambjóðanda.
7. gr. Framboðsfundur skal haldinn minnst tveim dögum fyrir kjörfund.
8 gr. Úrslit kosninga skulu kunngjörð ekki seinna en tveimur dögum eftir kjörfund.
9 gr. Kjörgengi og kosningarétt hafa allir meðlimir N.F.Su.
10 gr. Nemi sem dvelur tímabundið erlendis við námgetur boðið sig fram í embætti innan NFSu. Forsenda er þó sú að nemandi borgi sig fullt gjald í nemendafélagið og fá staðfestingu skólayfirvalda á því hann/hún sé nemandi við FSu.
11 gr. Aðeins er hægt að bjóða sig fram í eitt embætti hverju sinni.
12 gr. Í kosningum skal kosið til eftirfarandi embætta:
a) Formaður nemendaráðs.
b) Gjaldkeri nemendaráðs.
c) Ritari nemendaráðs.
d) Formaður skemmtinefndar.
e) 4 nemendur í skemmtinefnd.
f) Formaður íþróttaráðs.
g) 4 nemendur í íþróttaráð.
h) Ritstjóri NOTABENE.
i) 6 nemendur í ritráð NOTABENE.
j) Ritstjóri Pressuvefs (vefstjóri).
k) 2 nemendur í vefráð.
l) Markaðstjóri
m) 4 nemendur í markaðsráð
n) Formaður Leikfélags.
o) 2 nemendur í stjórn Leikfélags
p) 1 skólanefndarfulltrúi
q) Formaður tækjanefndar
r) 2 nemendur í tækjanefnd
13 gr. Hætti embættismaður störfum á önninni tekur sá frambjóðandi sæti hans sem næst var að ná kjöri í viðkomandi embætti í síðustu kosningum. Hafi verið sjálfkjörið í stöðuna skal kosið aftur í hana,innan tveggja vikna, skv. 2. og 3. grein kosningalaga.
14 gr. Frambjóðendur geta verið viðstaddir talningu atkvæða í það embætti sem þeir bjóða sig fram í óski þeir þess.
15 gr. Fái tveir eða fleiri frambjóðendur í sama embætti jafn mörg atkvæði í kosningum skal kosið aftur í það embætti.
16 gr . Á haustönn skal kosið til þeirra embætta sem ekki náði að fylla upp í og einnig skal fulltrúi nýnema í nemendaráð vera kosinn þá.
8. Endurskoðendur
1. gr. Endurskoðendur N.F.Su. skulu vera tveir, annar skipaður af skólastjórn en hinn af nemendaráði.
9. Um lög
1. gr. Lagabreytingatillögur þurfa að berast nemendaráði minnst viku fyrir aðalfund,undirritaðar af flutningsmönnum.
2. gr. Nemendaráð ber að kynna meðlimum N.F.Su. framkomnar lagabreytingatillögur og gefa flutningsmönnum tækifæri til að útskýra ástæður tillaganna.
3. gr. 2/3 hluta atkvæða þarf til að samþykkja tillögurnar.
10. Um gildi laganna
1. gr. Lög þessi taka þegar gildi
2. gr. Lögum þessum var breytt á Aðalfundi með samþykkt 2/3 meirihluta viðstaddra félagsmanna þann 29.apríl 2008.
GÖMLU LÖGIN:
1. Almenn ákvæði
1. gr. Nafn félagsins er Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands, skammstafað N.F.Su. Heimili þess og varnarþing er á Selfossi. Myndmerki þess og kennitákn lítur svona út:
2. gr. Markmið félagsins eru:
a) að sjá um félagslíf nemenda,
b) að gæta hagsmuna nemenda,
c) að veita félögum ýmis fríðindi.
3. gr. Félagsmenn teljast allir þeir nemendur skólans sem greiða félagsgjöld hverrar annar.
a) Félagsmenn skulu mæta í myndatöku í upphafi hverrar annar og fá þá afhent skírteini með nafni, kennitölu og mynd af viðkomandi. Félagsmenn eru sjálfir ábyrgir fyrir því að mæta í myndatöku og skulu gera það fyrir dagsetningu ákveðna af nemendaráði. Félagsmenn bera sjálfir ábyrgð á að sækja skírteini sín.
b) Skírteinin veita handhöfum þeirra ýmis fríðindi en hafi félagsmaður ekki skírteini undir höndum nýtur hann engra réttinda innan félagsins.
2. Stjórn félagsins
1. gr. Stjórn N.F.Su., skipa formaður, gjaldkeri og ritari. Stjórn N.F.Su. annast daglegan rekstur félagsins og kemur fram fyrir hönd þess.
2. gr. Nemendaráð starfar með stjórn N.F.Su. Nemendaráð hefur umsjón með allri starfsemi félagsins. Það getur kosið í nefndir og ráð sér til aðstoðar sem starfa að sérstökum málefnum innan þess. Nemendaráð hefur samstarf við nefndir, ráð og klúbba, sem starfa á vegum N.F.Su. Nemendaráð er skipað stjórn N.F.Su., formanni skemmtinefndar, formanni íþróttaráðs, formanni ritráðs, ritstjóra pressuvefs, formanni leikfélags og einum meðstjórnanda. Formaður tækjanefndar situr einnig fundi nemendaráðs en hefur ekki atkvæðisrétt. Fulltrúar Jafningjafræðslunnar og skólanefndarfulltrúi hafa áheyrnarrétt á fundum nemendaráðs. Stjórn N.F.Su. getur beitt neitunarvaldi gegn samþykktum nemendaráðs. Nemendaráði er heimilt að sækja allar samkomur á vegum félagsins endurgjaldslaust.
3. gr. Formaður N.F.Su. hefur umsjón með störfum nemendaráðs, hann boðar fundi þess og kemur fram fyrir hönd þess. Hann hefur rétt til að sitja fundi allra nefnda, ráða og áhugafélaga N.F.Su. Formaður N.F.Su. er meðlimur í skólaráði og situr skólanefndarfundi fyrir hönd nemenda.
4. gr. Gjaldkeri N.F.Su. hefur umsjón með fjármálum félagsins og ber að láta gjöld og tekjur fara um ávísanareikning þess. Hann hefur aðgang að bókhaldi allra nefnda og ráða N.F.Su. Hann leggur fram heildarreikninga félagsins á aðalfundi félagsins. Gjaldkeri N.F.Su. situr einnig í skólaráði ásamt formanni N.F.Su. fyrir hönd nemenda.
5. gr. Ritari N.F.Su. ritar fundargerðir nemandaráðsfunda og les bréf sem að berast félaginu. Hann heldur yfirlit yfir starfsemi og félagslíf N.F.Su., þ.m.t. samantekt á Ársskýrslu fyrir Aðalfund. Hann sér um að skrifa bréf félagsins. Ritari N.F.Su. er staðgengill formanns í forföllum hans. Ritari N.F.Su. situr ásamt formanni og gjaldkera í skólaráði fyrir hönd nemenda.
6.gr. Meðstjórnandi N.F.Su. sækir fundi í gæðamatsnefnd fyrir hönd nemenda. Hann hefur umsjón með að útvega nemendur í gæslu fyrir böll, er tengiliður við það rútu-fyrirtæki sem ekur í sætaferðum og sér um ýmis önnur störf er til falla.
3. Nefndir og ráð
1. gr. Innan N.F.Su. starfa eftirtaldar nefndir og ráð:
a) Skemmtinefnd. Hún er skipuð fimm nemendum . Þar af einum formanni sem ber ábyrðá störfum hennar og er meðlimur í nemendaráði. Nefndin skal sjá um öflugt og fjölbreytt skemmtanalíf fyrir nemendur.
b) Ritráð. Það er skipað sjö nemendum, þar af einum ritstjóra sem ber ábyrgð á störfum þess og er meðlimur í nemendaráði. Ritráð skal sjá um útgáfu skólablaðs N.F.Su., NOTABENE, og skal það koma út a.m.k. einu sinni á önn. Ritráð skal kappkosta að hafa blaðið fjölbreytt og vandað. Ritráð skal einnig sjá um útgáfu símaskrár N.F.Su. í upphafi hvers árs og skulu lög félagsins birt þar.
c) Íþróttaráð. Það er skipað fimm nemendum, þar af einum formanni sem ber ábyrgð ástörfum þess og er meðlimur í nemendaráði. Íþróttaráð skal stuðla að öflugri og fjöl-breyttri íþróttastarfsemi innan skólans og sjá um framkvæmdir keppna við aðra skóla.
d) Vefráð. Það er skipað fjórum nemendum, þar af einum ritstjóra sem ber ábyrgð á störfum þess. Hann er meðlimur í nemendaráði. Vefráð skal sjá um heimasíðu N.F.Su., Pressuvefinn, birta þar fréttir og uppfæra hann reglulega. Þar koma fram fréttir innan skólans, tilkynningar frá nefndum og annað sem á erindi til nemenda. Hann skal uppfærast a.m.k. mánaðarlega. Ritstjóri pressuvefs heldur saman umfjöllun um N.F.Su. í öðrum fjölmiðlum.
e) Tækja-,ljósmynda- og videónefnd. Hana skulu skipa 3 nemendur, þar af einn formaður sem ber ábyrgð á störfum hennar. Hann getur setið fundi nemendaráðs ef hann óskar þess. Þar hefur hann ekki atkvæðisrétt, aðeins tillögurétt. Tækja-, ljósmynda og videonefnd ber að sjá um að taka upp viðburði, svo sem söngkeppni, leikrit, kvöldvökur og busavígslur. Einnig ber henni í samráði við vefráð NFSU.IS og NOTA BENE að taka ljósmyndir af böllum og öðrum viðburðum.
f) Leikfélag N.F.Su. Það skipa þeir sem hafa áhuga á leiklist og vilja vinna að uppfærslu á skólaleikriti á vegum félagsins. Formaður leikfélagsins skal kosinn um leið og kosið er í önnur embætti á vegum N.F.Su. og situr hann í nemendaráði. Einnig skal kosið um 2 einstaklinga í stjórn Leikfélags um leið og kosið er í önnur embætti á vegum N.F.Su. og skal annar þeirra gegna embætti Féhirðis en hinn embætti Skrifara.
g) Kátudaganefnd. Hana skipa níu manns. Skemmtinefnd er sjálfkjörin í Kátudaganefnd en auk þess skulu sitja 2 fulltrúar kennara, 1 úr nemendaráði og 1 fulltrúi nemenda. Formaður skemmtinefndar skal skipaður formaður nefndarinnar. Nefndin skal sjá um undirbúning og framkvæmd Kátra daga.
h) Flóafársnefnd. Hana skulu skipa 3 fulltrúar nemenda skipaðir af nemendaráði auk þriggja fulltrúa kennara. Nefndin skal sjá um framkvæmd og undirbúning Flóafárs.
i) Skreytinganefnd. Sér um að skreyta skólann og tilfallandi fyrir ýmsa viðburði nemendafélags, s.s. busavígslu, þemaböll, söngkeppni og kátadaga. Nefndina skipar meðstjórnandi N.F.Su. og starfar hún undir honum.
j) Lagabreytinganefnd. Tekur hún til starfa mánuði fyrir aðalfund. Hana skipa tveir úr stjórn N.F.Su. og einn oddamaður úr nemendaráði. Tekur hún til skoðunar allar lagabreytingartillögur. Hún skal skipuð á nemendaráðsfundi.
2. gr. Nefndir og ráð N.F.Su., nema Kátudaganefnd, Leikfélag og Flóafársnefnd, skulu gera áætlanir um starf sitt í upphafi hverrar annar.
3. gr. Ábyrgðarmenn nefnda og ráða bera ábyrgð á fjármálum gagnvart gjaldkera N.F.Su.
4.gr. Forsvarsmenn hverra nefnda hafa rétt til að víkja einstaklingum tímabundið úr nefndum. Ef víkja á einhverjum alfarið úr nefnd skal það borið undir nemendaráð á fundi og skal sá einstaklingur fá að tala sínu máli.
5.gr. Meðlimir nemendaráðs og allir nefndarmenn skulu borga félagsgjöld.
6. gr. Nemendur sem sitja ráð og nefndir N.F.Su. fá einn frímiða á ball á hvorri önnskóla ársins.
4. Áhugafélög
1. gr. Meðlimir N.F.Su. geta stofnað áhugamannafélög innan N.F.Su.
2. gr. Við stofnun áhugamannafélaga innan N.F.Su. skal kjósa stjórn félagsins sem skipa skulu formaður, gjaldkeri og ritari, einnig skal velja félaginu nafn. Þegar þessum upplýsingum hefur verið skilað til nemendaráðs telst það formlega stofnað.
3. gr. Áhugamannafélög skulu starfa sem mest sjálfstætt.
4. gr. Áhugamannafélög geta sótt um fjárstuðning fyrir starfsemi sína til nemendaráðshafi þau tilkynnt stofnun þess. Þau skulu kappkosta að láta starfsemi standa undir sér fjárhagslega s.s. með árgjöldum félagsmanna eða öðrum fjáröflunum. Ekki geta áhugafélög sótt um hærri styrki en sem nemur 15. þúsund kr. Á önn og hefur gjaldkeri rétt til að krefja nefnd um endurgreiðslu ef honum finnst notkun styrksins ekki við hæfi að tengja við starf N.F.Su.
5. gr. Gjaldkeri N.F.Su. hefur aðgang að bókhaldi félaganna ef þau njóta fjárstuðnings Nemendafélagsins.
6. gr. Formaður áhugamannafélags er tengiliður við nemendaráð og skal hann tilkynna nemendaráði starfsemi félagsins eftir nánara samkomulagi þar á milli.
5. Aðalfundur
1. gr. Aðalfundur skal haldinn undir lok vorannar
2. gr. Hann skal auglýstur með viku fyrirvara og er löglegur sé löglega til hans boðað.
3. gr. Dagskrá aðaðalfundar:
a) Fundarsetning. Formaður NFSu skal skipaður fundarstjóri og ritari NFSu skal skipaður fundarritari.
b) Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
c) Ársskýrsla nemendaráðs lögð fram.
d) Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
e) Lagabreytingar.
f) Önnur mál.
g) Orðið gefið laust .
h) Fundi slitið.
4. gr. Ef færri en 40% nemenda sitja fundinn þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða til samþykktar.
6. Nemendafundur
1. gr. Nemendafundur er opinn fundur nemenda F.Su. og skal haldinn:
a) ef nemendaráð telur þörf á að leggja eitthvað mál fyrir nemendur,
b) ef minnst 10% nemenda krefjast þess,
2. gr. Ef færri en 40% nemenda sitja fundinn þarf minnst 2/3 hluta greiddra atkvæði til samþykktar.
3. gr. Nemendafundur skal auglýstur með minnst dags fyrirvara.
7. Kosningalög N.F.Su.
1. gr. Kosningar til allra embætta N.F.Su. skulu fara fram að vori. Kosningar skulu ekki haldnar fyrr en 14 dögum fyrir aðalfund og ekki síðar en degi fyrir aðalfund.
2. gr. Kosningar skulu vera leynilegar. Aðeins félagsmenn N.F.Su. hafa kosningarétt.
3. gr. Þriggja manna kjörstjórn, skipuð af nemendaráði, skal sjá um framkvæmd kosninganna. Hún skal skipuð tveimur úr nemendaráði en þriðji aðilinn skal ekki sitja í nemendaráði eða vera í ráðum eða nefndum innan þess. Verkefni kjörstjórnar eru:
a) Að auglýsa eftir framboðum í embætti N.F.Su.
b) Að sjá um framboðsfund þar sem frambjóðendum gefst kostur á að kynna sig og áform sín.
c) Framkvæmd kjörfundar.
d) Talningu atkvæða.
4. gr. Kjörstjórn er skipuð mánuði fyrir kosningar.
5. gr. Hyggi kjörstjórnarmeðlimur á framboð til embættis innan N.F.Su. ber honum að segja af sér og nemendaráði að tilnefna annan í hans stað.
6. gr. Þeir sem taka sér sæti í kjörstjórn, til að halda hlutleysi, fyrirgera sér kosningarétti og mega ekki undir neinum kringumstæðum lýsa yfir stuðningi við frambjóðanda.
7. gr. Framboðsfundur skal haldinn minnst tveim dögum fyrir kjörfund.
8 gr. Úrslit kosninga skulu kunngjörð ekki seinna en tveimur dögum eftir kjörfund.
9 gr. Kjörgengi og kosningarétt hafa allir meðlimir N.F.Su.
10gr. Nemi sem dvelur tímabundið erlendis við námgetur boðið sig fram í embætti innan NFSu. Forsenda er þó sú að nemandi borgi sig fullt gjald í nemendafélagið og fá staðfestingu skólayfirvalda á því hann/hún sé nemandi við FSu.
11r. Aðeins er hægt að bjóða sig fram í eitt embætti hverju sinni.
12 gr. Í kosningum skal kosið til eftirfarandi embætta:
a) Formaður nemendaráðs.
b) Gjaldkeri nemendaráðs.
c) Ritari nemendaráðs.
d) Formaður skemmtinefndar.
e) 4 nemendur í skemmtinefnd.
f) Formaður íþróttaráðs.
g) 4 nemendur í íþróttaráð.
h) Ritstjóri NOTABENE.
i) 6 nemendur í ritráð NOTABENE.
j) Ritstjóri Pressuvefs.
k) 3 nemendur í vefráð.
l) 1 meðstjórnandi í nemendaráð.
m) Formaður Leikfélags.
n) 2 nemendur í stjórn Leikfélags
o) 1 skólanefndarfulltrúi
p) Formaður tækjanefndar
q) 2 nemendur í tækjanefnd
13 gr. Hætti embættismaður störfum á önninni tekur sá frambjóðandi sæti hans sem næst var að ná kjöri í viðkomandi embætti í síðustu kosningum. Hafi verið sjálfkjörið í stöðuna skal kosið aftur í hana,innan tveggja vikna, skv. 2. og 3. grein kosningalaga.
14 gr. Frambjóðendur geta verið viðstaddir talningu atkvæða í það embætti sem þeir bjóða sig fram í óski þeir þess.
15 gr. Fái tveir eða fleiri frambjóðendur í sama embætti jafn mörg atkvæði í kosningum skal kosið aftur í það embætti.
8. Endurskoðendur
1. gr. Endurskoðendur N.F.Su. skulu vera tveir, annar skipaður af skólastjórn en hinn af nemendaráði.
9. Um lög
1. gr. Lagabreytingatillögur þurfa að berast nemendaráði minnst viku fyrir aðalfund,undirritaðar af flutningsmönnum.
2. gr. Nemendaráð ber að kynna meðlimum N.F.Su. framkomnar lagabreytingatillögur og gefa flutningsmönnum tækifæri til að útskýra ástæður tillaganna.
3. gr. 2/3 hluta atkvæða þarf til að samþykkja tillögurnar.
10. Um gildi laganna
1. gr. Lög þessi taka þegar taka þegar gildi