Skoðanakönnun

Á skalanum 1-5, hversu sátt/ur ertu með nýju stundatöfluna þína ?





9702
 

Tónlistar- festival og Kvöldvaka !

| Sölvi Þór | 28.09.'09


Í dag, á morgun, og á miðvikudaginn verður hið víðfræga og geysivinsæla TÓNLISTARFESTIVAL sem er haldið núna þriðja árið í röð !
Þeir ANTON OG ALEXANDER fá þann heiður að opna festivalið með gítarspili sínu og söng, en í hádeginu tekur DAÐI FREYR við og spilar nokkur falleg lög.
Á þriðjudaginn byrjar okkar frábæri KÓR FSU daginn með söng í fullkomnri harmóníu í 9:40 kaffinu. Í hádeginu syngur svo hin unga meyja SIF SIGURÐARDÓTTIR.
Á miðvikudaginn syngja þau JÓHANNA ÓMARS og DANÍEL HAUKUR undurfagran raddaðan söng ásamt undirspili í 9:40 kaffinu, en í hádeginu koma hini síkátu drengir í ALLRA VEÐRA VON og trúbbast af lífi og sál.


Á miðvikudaginn lokum við svo festivalinu með hreint út sagt glæsilegri TROPICAL ÞEMA KVÖLDVÖKU þar sem hin heimsfræga stórhljómsveit MAMMÚT (SÆLIR !) heldur eina af síðustu tónleikunum fyrir evróputúrinn stóra ! Þar að auki mun ein local hljómsveit spila nokkur lög, það verður funheit GÍTARSÓLÓKEPPNI þar sem bestu gítarleikarar skólans etja kappi um miða á ball, en þar munu áhorfendur dæma um sigurvegara (skráning er ennþá opin í keppnina inná hreiðri !).
Ef að þið eruð ekki farin að gráta af ánægju núna, þá ætla ég að bæta því við að það verða BRÁÐFYNDNIR SKETSAR sem skemmtinefndin hefur eitt miklum tíma í að setja saman !

Kvöldvakan byrjar STUNDVÍSLEGA klukkan 20:00 þannig að mætið snemma til að fá sæti !
Það kosta litlar 500 krónur fyrir félaga en hinsvegar kostar helmingi meira, eða 1000 krónur fyrir ófélaga (hmm borgar sig að vera félagi) !

Allir að fylgjast með tónlistaratriðinunum á festivalinu og mæta svo á KLIKKAÐA kvöldvöku á miðvikudagskvöldið !

Leiter skeiter,
Sölvi Þór.

Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Suđurlands
Tryggvagötu 25
sími 482-4343
nfsu@nfsu.is