Nú er stórskemmtilegu Flóafári lokið hér í skólanum!
Flóafárið var hrikalega skemmtilegt að venju en einungis eitt lið getur staðið uppi sem sigurvegarar (þó að í raun séu auðvitað allir sigurvegarar) og í ár var það Vampíruveldið undir stjórn Ólafs Ingva Ólasonar og Katrínar Aagestad Gunnardóttur sem að sigraði.
Í öðru sæti var lið Super Mario Bros, en þau unnu þó til verðlauna fyrir bestu heildarmyndina og besta herópið. Stórskemmtilegt lið sem var leitt af hinum miklu heiðursmönnum, Kára Þ. Kárasyni og Guðjóni Gestssyni. Þau komu fyrst í mark en það dugði ekki til að þessu sinni, þar sem að refsistig þeirra voru fleiri en refsistig Vampíruveldisins.
Í þriðja sæti var svo lið Cobras, þrátt fyrir að vera minnsta liðið þetta árið. Þeir Gunnlaugur Bjarnason og Jökull Logi stýrðu liðiðnu af miklum myndugleik og þeim gekk vel í þrautunum og fengu fá refsistig.
Í fjórða sæti var svo lið Klóa sem að Baldur Rafn Gissurarson og Gunnar Már Hauksson stýrðu. Þeir komu síðastir í mark.
Í fimmta og síðasta sæti var síðan eitt af fjölmennustu liðunum, Garfield, sem að Páll Óli Ólason og Guðmundur Þórarinsson leiddu. Þau unnu þó til verðlauna fyrir besta skemmtiatriðið. Þau komu þriðju í mark, skrefi á undan Cobras, en of mörg refsistig urðu þeim að falli.
Þetta var gríðarlega skemmtilegt og mig langar að þakka öllum þátttakendum, kennurum og síðast en ekki síst Flóafársnefnd og íþróttaráði fyrir góðan dag.