Lazer-Tag mót fór fram í Fjölbrautaskólanum í gærkvöldi
Mótið hófst kl. rúmlega 20:00 eftir að kynþokkafullur gjaldkeri nemendaráðs hafði innheimt keppnisgjald allra keppenda.
Hvert lið spilaði 10 leiki, sem að gerði þennan viðburð mun skemmtilegri en hann var í fyrra, þar sem að spilatíminn var mun minni.
Þegar að hvert lið hafði spilað 5 leiki voru tvö lið efst og jöfn,
The Stinson's og
Angels of Death, bæði með fullt hús stiga. í síðari umferðinni náði
The Stinson's betri úrslitum en
Angels of Death, unnu þrjá og töpuðu tveimur og enduðu því efstir með 8 sigra og 2 töp.
Næstu lið voru
Angels of Death,
Grænu Drekarnir og
Bleiku Beljurnar, sem að voru öll með 7 sigra og 3 töp.
Stelpurnar í
Ninas (vá hvað ég kann ekki að gera spænska n-ið) stóðu sig einnig frábærlega..og hefðu kannski bara átt að vinna þetta!
Því verða þeir fulltrúar okkar í
Lazer-Tag keppni framhaldsskólanna, sem að fram fer í Reykjavík síðar á þessari önn.
NFSu vill óska
The Stinson's til hamingju með sigurinn og þakkar um leið öllum liðunum sem tóku þátt í gær fyrir frábæra skemmtun!