Fyrsta æfing Leikfélags NFSu átti sér stað á þriðjudaginn síðastliðinn og prufur voru haldnar á miðvikudag. Æfingin var haldin innan veggja skólans og gekk með öllu stórvel að sögn Péturs Karls Ómarssonar en hann er Formaður Leikfélags og sér því um uppsetningu söngleiksins.
Leikstjóri að þessu sinni er Garún Daníelsdóttir en hún hefur leikstýrt fjölmörgum bíómyndum og öðrum framhaldsskólaleikritum. Það voru 46 manns sem mættu í prufur en um 20 fá hlutverk í söngleiknum.
Að sögn Péturs Karls er búið að velja verk en það hvílir mikil leynd yfir því, þó segir hann að þetta verk sé fremur óvenjulegt en engu að síður mjög spennandi. Heyrst hefur að söngleikurinn verði bannaður börnum. Söngleikurinn verður svo frumsýndur um miðjan mars næstkomandi.
Leikfélag NFSu á nokkuð langa sögu leiksýninga og má þar nefna Skítamórals söngleikinn „Hey þú!“, Bítla söngleikinn „Let it be“ og Rokksöngleikinn „Til sölu“. Leikfélagið hefur einnig sett upp mörg minni verk en þar má nefna „Fuglinn minn heitir Fótógen“, „Músagildran“, „Sambýlið“ og núna seinast var sett upp „Rómeó og Júlía - Remix“