Skoðanakönnun

Á skalanum 1-5, hversu sátt/ur ertu með nýju stundatöfluna þína ?





11445
 

Söngkeppni NFSU 2009 ! Gunnar Guðni kom , sá og sigraði !

| Fannar | 16.11.'09

Söngkeppni NFSu 2009 var haldin fimmtudaginn 12.nóv og eru allir sammála um að keppnin hafi tekist frábærlega í ár í alla staði.
Fullt var af flottum söng og dansatriðum, heill leikþáttur spilaði inní keppnina og kynnar kvöldsins voru með þeim betri sem fólk hafði séð í ár og aldir. Það er allavegana orðið á götunni eftir þetta magnaða kvöld og ef að þú varst ekki á svæðinu þá vorkenni ég þér mjöög mikið .

Við í nemendaráðinu viljum óska Katrínu ( söngkeppnisformaður ) til hamingju með glæsilega keppni í ár  :)

En eins og ég sagði áður sungu mjög margir frábærir söngvarar þetta kvöld en ekki geta allir unnið ( það væri bara fáránlegt ).  Svona hljóðuðu sætin :



1.Sæti = Gunnar Guðni Harðarsson með lagið God Knows eftir sænsku rokkhljómsveitina Mando Diao

2.Sæti = Jóhanna Margrét Einarsdóttir með lagið I Wish i Was a Punk Rocker eftir Sandi Thom

3.Sæti = Anton Guðjónsson með færeyska lagið Hákun ríður í Timburskóg.

Besta sviðsframkoma =  Hildur Öder og Anna María með lagið P.I.M.P eftir hljómsveitina Undirheima.


Við viljum óska Gunnari til hamingju með frábæran flutning og 1.sætið sem hann átti svo algjörlega skilið !


Gunnar Guðni / Ljósmyndari : Maggi


Dómnefndin í ár / Ljósmyndari : Maggi

Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Suđurlands
Tryggvagötu 25
sími 482-4343
nfsu@nfsu.is