Ungmennaþing Árborgar
í Pakkhúsinu 8.nóvember
Sunnudaginn 8. nóvember kl.14:00 verður ungmennaþing
Árborgar haldið í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar að Austurvegi 2b, (fyrir
aftan bókasafnið). Þingið er ætlað öllum ungmennum í Árborg á aldrinum 13 – 30 ára.
Markmið þingsins er að skoðanir ungmenna úr öllum
byggðarkjörnum Árborgar komi fram. Niðurstöður þingsins verða síðan afhent
bæjarstjórn Árborgar.
Yfirskrift þingsins er: “Ekki
sitja heima og röfla, komdu þinni skoðun á framfæri”
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta-
og tómstundanefndar munu ávarpa þingið.
Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir
Ungmennaráð Árborgar
Fannar Freyr Magnússon
Vala Hauksdóttir
Vigdís Fríða
Þorvaldsdóttir
Hrefna Björg
Ragnarsdóttir
Íris Erla Gísladóttir
Dagur Fannar Magnússon
Kolbrún Lilja
Guðnadóttir