Skoðanakönnun

Á skalanum 1-5, hversu sátt/ur ertu með nýju stundatöfluna þína ?





17203
 

Síðasta Kvöldvaka ársins !

| Sölvi Þór | 29.10.'09



Fimmtudaginn 29. okt næstkomandi verður SÍÐASTA KVÖLDVAKA ÁRSINS !




ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON
verður með UPPISTAND og tónlistaratriði með HELGA SVAVARI ÚR HJÁLMUM sem er sérstaklega æft fyrir þessa kvöldvöku !

Svo verður í fyrsta skipti á sviði í FSu, DJÚPA LAUGIN, en þá etja 3 nemendur úr FSu kappi um ást fagrar UNGMEYJAR !

Ekki má gleyma einum stærsta viðburði kvöldvökunnar, en það er hið feykivinsæla VAKNINGARMYNDBAND, en í því eru nokkrir nemendur skólans vaktir um miðja nótt ! Þetta er aldagömul hefð sem allir muna eftir og þú vilt sko ekki missa af þessu ! Þetta er nú eitt af því sem gerir FSu að FSu !
Kommon Kraks ! Skúl Spirit ! Mætá Kvöldvöku !


Að lokum verður sýnt sérstakt KENNARAMYNDBAND, og ég veit að þetta hljómar ekkert rosa spennó, en þetta er fáránlega fyndið !


Kvöldvakan byrjar stundvíslega klukkan 20 þannig að mætið vel fyrir það til þess að fá sæti !

Verð er litlar 500 krónur fyrir Félaga (næs!) en 1000 krónur fyrir Ófélaga, þannig að það borgar sig að vera í félagi ! (Þið getið alltaf komið inná Hreiður og borgað félagsgjöldin :))

Það má líka minnast á það að kvöldvakan verður búin fyrir Suðurlandsins Eina Von þannig að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af því ;)

EKKI VERA SÚR ! MÆTTU Á KVÖLDVÖKU ! ÞAÐ ER FOKKING GAMAN ! :D


Kv, Sölvi Þór.

Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Suđurlands
Tryggvagötu 25
sími 482-4343
nfsu@nfsu.is